flugfréttir

Slóu 34 ára gamalt hraðamet yfir Atlantshafið á Socata TBM 930

- Frá New York til Parísar á rúmum 8 tímum á eins hreyfils flugvél

12. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 09:12

Félagarnir Dierk Reuter og Phil Bozek við komuna til Le Bourget flugvallarins sl. laugardag

Tveir flugmenn settu sl. helgi nýtt heimsmet er kemur að flughraða er þeir flugu yfir Atlantshafið frá New York til Parísar á einshreyfils flugvél af gerðinni Socata TBM 930.

Flugmennirnir, Dierk Reuter og Phil Bozek flugu frá Westchester County flugvellinum í White Plains í New York til Le Bourget flugvallarins í París á aðeins 8 klukkutímum og 35 mínútum og slóu þar með 34 ára gamalt heimsmet flugmannsins Chuck Yeager sem sett var árið 1985.

Reuter og Bozek undirbjuggu sig vel fyrir flugið í samráði við flugvélaryfirvöld beggja megin Atlantshafsins í þeim tilgangi að freista þess að slá metið er varðar flugvélar í flokki C1e sem flokkast undir þær skrúfuþotur sem hafa hámarksflugtaksþunga upp á allt að 6 tonn.

Flugvélin, sem er í eigu Reuter, var útbúin viðbótareldsneytistönkum sem bera 300 gallon af þotueldsneyti og með því var heildarmagn eldsneytisins um borð fyrir flugtak um 600 gallon sem gefur flugþol upp á 10 klukkustundir.

Fyrir upphaf leiðangursins yfir Atlantshafið

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) gáfu flugmönnunum heimild fyrir fluginu með flugtaksþunga upp á 9.500 pund en skráður hámarksflugtaksþungi TMB 930 flugvélarinnar er 7.398 pund. Þá var flugvélin útbúin með Iridrium Go! staðsetningarbúnaði.

Reuter er fjármálaráðgjafi frá Chicago sem hefur 4.500 flugtíma að baki en hann hefur meðal annars flogið til Suðurskautslandið á eldri TMB 850 flugvél sem hann átti.

Bozek, sem er frumkvöðull frá Michigan og fasteignasali sem flýgur listflugvélum í frístundum og safnar herflugvélum, hefur 3.400 flugtíma að baki og þar af 800 flugtíma á flugvél af gerðinni Socata TBM 900.

Flugvélin var á lofti í 8:39 klukkustundir









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga