flugfréttir
Lufthansa ætlar að selja sex risaþotur til Airbus
Airbus A380 risaþota Lufthansa
Lufthansa hefur tilkynnt að flugfélagið þýska ætli sér að losa sig við að minnsta kosti sex Airbus A380 risaþotur sem verða seldar aftur til Airbus.
Þetta er tæplega helmingurinn af þeim 14 Airbus A380 risaþotum sem Lufthansa hefur í flotanum en risaþoturnar
sex verða þó a.m.k. í þrjú ár til viðbótar í notkun hjá Lufthansa.
Fyrsta risaþotan af þessum sem fer úr flota félagsins árið 2022 og sú síðasta ári síðar og verður Lufthansa þá með átta
Airbus A380 í notkun eftir það.
Lufthansa ætlar sér að leysa þessar sex risaþotur af hólmi með nýjum Airbus A350 breiðþotum og Boeing 777-9 þotum
sem félagið mun fá afhentar á næstu misserum.
Airbus hefur fallist á að kaupa risaþoturnar sex af Lufthansa þar sem framleiðandinn ætlar sér að glæða nýju lífi
í sölu á notuðum risaþotum eftir að ákvörðun var tekin um að hætta framleiðslunni á þeim.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.