flugfréttir

Flugvöllur til sölu á 257 milljónir

- Malbikuð flugbraut, stór flugskýli og heill flugskóli fylgir með í kaupunum

16. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:28

Flugvöllurinn Marine City Airport er til sölu fyrir 257 milljónir króna

Fasteignasala ein í Bandaríkjunum hefur fengið umboð til þess að selja heilan flugvöll sem er nú til sölu fyrir 257 milljónir króna.

Flugvöllurinn sem um ræðir er Marine City flugvöllurinn, skammt norðaustur af Detroit í Michigan en flugvöllurinn tilheyrir bænum Marine City við landamæri Bandaríkjanna og Kanada en flugvöllurinn var opnaður árið 1942.

Flugvöllurinn kemur með einni malbikaðri flugbraut sem er 930 metra á lengd, tveimur stórum flugskýlum og öðru minna flugskýli og þá fylgir heill flugskóli með í kaupunum fyrir þann sem hefur átt sér draum um að eignast sinn eigin flugskóla.

Pláss er fyrir 32 flugvélar í flugskýlunum á vellinum

Tvö ár eru síðan að eigandi flugvallarins, Willis Manter, lést 95 ára að aldri og var ákveðið á dögunum að setja flugvöllinn á sölu en flugvallarlandið eru alls 69 hektarar á stærð.

Randy Carlier, sem sér um söluna á flugvellinum, segist vonast til að nýr eigandi finnist og tekur hann fram að starfsfólk flugvallarins sé tilbúið í að halda áfram að starfa á flugvellinum fyrir nýja eigandann.

Mikil tækifæri eru í boði þar sem margvísleg þjónusta fer fram á flugvellinum, honum vel haldið við með þremur flugvirkjum í hlutastarfi og þá eru 32 flugvélaeigendur sem leigja aðstöðu í flugskýlunum fyrir ýmsar gerðir af einkaflugvélum.

Þá eru tveir 10.000 gallona eldsneytisgeimar á flugvellinum, 1.100 fermetrar flugskýli sem er upphitað, tveggja hæða einsbýlishús með fjórum herbergjum, tæki til snjómoksturs, dráttarvélar og hesthúsi fylgir einnig með í kaupunum.

Stærsta flugskýlið er 1.100 fermetrar á stærð

Korissa Wilkins, fasteignasali, segist vonast til þess að einhver muni koma og kaupa flugvöllinn þar sem flugmenn á svæðinu reiða sig á flugvöllinn sem er mikið notaður auk þess sem að meðaltali átta flugnemar eru hverju sinni að læra til einkaflugmanns í flugskólanum.

„Um leið og þeir útskrifast þá hafa þeir leigt af okkur flugvélar. Þeir koma alltaf aftur hingað til að fljúga um leið og þeir fá skírteinið því það er mun auðvitað mun ódýrara heldur en að kaupa sína eigin flugvél“, segir Wilkins.

Fleiri myndir:













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga