flugfréttir
EasyJet hefur ekki lengur áhuga á Alitalia
- Draga sig frá viðræðum um yfirtöku með Ferrovie og Delta
Airbus A320 þota easyJet
EasyJet hefur sagt að flugfélagið breska sé ekki lengur með áhuga fyrir yfirtöku á ítalska flugfélaginu Alitalia og hefur félagið dregið tilboð sitt til baka.
EasyJet hafði verið í viðræðum við ítalska fyrirtækið Ferrovie og Delta Air Lines um mögulegt samstarf um yfirtöku á
Alitalia með stofnun á nýju eignarhaldsfyrirtæki en easyJet segir að félagið hafi dregið sig í burtu frá þeim áformum.
Félagið hefur ekki gefið út hver ástæðan fyrir því sé en easyJet tekur fram að félagið ætli sér að halda áfram að þjóna
Ítalíu og fjárfesta í flugiðnaðinum með flugi til og frá landinu.
Ferrovie tilkynnti í febrúar að fyrirtækið hefði áform um að taka yfir rekstur Alitalia í samstarfi við Delta og easyJet
en Alitalia hefur verið til sölu frá árinu 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.