flugfréttir

Negus-þotan lendir í London

- Fjórða og síðasta retró-þota British Airways lítur dagsins ljós

21. mars 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:53

G-CIVB í lendingu á Heathrow-flugvellinum í London í morgun

British Airways hefur lokið við að mála fjórðu og síðustu flugvélina í flotanum í sérstökum retro-litum.

Fjórða retró-flugvél British Airways er af gerðinni Boeing 747-400 og var hún máluð í „Negus“-litunum í Dublin á Írlandi og lenti hún á Heathrow-flugvellinum í morgun.

Negus-litirnir voru innleiddir hjá British Airways árið 1974 þegar nafnið „British Airways“ var tekið upp að nýju en félagið hafði þá frá árinu 1939 heitið BOAC eftir samruna Imperial Airways og British Airways.

Júmbó-þotan, sem var máluð í Negus-litunum, er G-CIVB

Negus-litirnir voru kynntir árið 1940 við samruna BOAC (British Overseas Airways Corporation) og BEA (British European Airways) en litirnir voru hannaðir af hjónunum Dick og Pam Negus sem ráku saman auglýsingastofuna Negus Agency.

Negus-litirnir var upphafið af því útliti sem einkennir British Airways í dag og var flugflotinn í þessum litum í 10 ár eða til ársins 1984 en þá kynnti félagið Landor-litina sem voru málaðir á þriðju retró-þotu British Airways sem lenti á Heahtrow-flugvelli þann 9. mars sl.

Negus-þotan mun fljúga nú um kvöldmatarleytið sitt fyrsta flug í retró-litunum til Höfðaborgar í Suður-Afríku.

Fleiri myndir:















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga