flugfréttir
Flugvél föst upp í tré í Hollandi
- Voru að æfa viðbrögð við mótormissi og misstu mótor
Flugvélin var enn föst í trénu nú undir kvöld en slökkvilið náð að bjarga tveimur mönnum úr flugvélinni
Óvenjulegt atvik átti sér stað nálægt Hilversum-flugvellinum í Hollandi í dag er lítil flugvél missti mótor yfir skógi og kom niður í tré og endaði föst í trjágreinum í 10 metra hæð.
Um borð í flugvélinni, sem er af gerðinni TL Ultralight TL-3000 Sirius, var flugkennari og nemandi hans og voru
þeir að æfa neyðarviðbrögð við mótormissi þegar hlutirnir fóru á annan veg en áætlað var.
Flugneminn og flugkennarinn ákváðu að hreyfa sig sem minnst eftir að flugvélin endaði í trénu af ótta við að
trjágreinarnar myndu brotna og vélin falla til jarðar.
Slökkvilið mætti á staðinn með stigabíl auk sjúkraþyrlu og náðist að bjarga báðum úr flugvélinni en þeir voru hundvotir í flugvélabensíni
þar sem tankur flugvélarinnar fór að leka eftir að vélin skall á trénu.
„Þetta er soldið mikið áfall. Þetta hefur aldrei áður gerst með neina flugvél frá okkur“, segir talsmaður flugklúbbsins
Dwarf Powered Gliders í bænum Hilversum.
Slökkvilið að störfum við að ná flugkennaranum og nemanda hans úr flugvélinni
Fram kemur að flugvélin hafi verið tiltölulega nýfarin í loftið frá flugvellinum þegar upp komu gangtruflanir í mótornum
þegar flugkennarinn undirbjó nemandann fyrir neyðarviðbrögð við mótormissi.
Bæði flugkennarinn og nemandi hans sluppu með skrekkinn en annar þeirra var útskrifaður af sjúkrahúsi skömmu
eftir atvikið á meðan hinn var lengur í læknisskoðun.
Flugvélin var enn föst upp í trénu nú undir kvöld en nokkurn tíma tók að bjarga mönnunum úr flugvélinni þar sem erfitt var fyrir körfubíl
að komast að vettvangi í miðjum skóginum.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.