flugfréttir

Breytingar á flugáætlun Icelandair

- Gert ráð fyrir að Boeing 737 MAX verði kyrrsett fram til 16. júní

10. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:07

„Jökulsárlón“, Boeing 737 MAX þota Icelandair

Icelandair hefur tilkynnt um breytingar á leiðarkerfi félagsins sem meðal annars má rekja til kyrrsetningar á Boeing 737 MAX þotum félagsins en á föstudag verður kominn einn mánuður frá því Boeing 737 MAX var kyrrsett.

Í tilkynningu Icelandair kemur fram að kyrrsetning Boeing 737 MAX mun vara fram til 16. júní og segir að með þeim aðgerðum sem gripið var til með því að bæta leiguvélum í flotann hafi tekist að lágmarka þau áhrif sem kyrrsetningin hefði annars haft.

Frá 1. apríl til 15. júní mun Icelandair fella niður 3,6% af flugferðum félagsins sem samsvarar 100 flugferðum á því tímabili en í flestum tilfellum er um að ræða flug til áfangastaða þar sem fleiri en eitt flug eru í boði sama dag.

Þrátt fyrir þessar ráðstafanir helst sætaframboð félagsins nánast óbreytt þar sem notast verður við Boeing 767 flugvélar sem eru stærri en Boeing 737 MAX vélarnar. Af þeim sökum er gert ráð fyrir óverulegum áhrifum á heildarfjölda fluttra farþega á tímabilinu.

Icelandair ákvað einnig að hætta flugi til Cleveland í Ohio og til Halifax í Kanada sem áður hefur verið tilkynnt sem má rekja til kyrrsetningar Boeing 737 MAX.

Farþegarýmið um borð í TF-ICE

Þá kemur fram að ekki sé vitað hver fjárhagsleg staða sé vegna áhrifa af kyrrsetningu flugvélanna þar sem að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda.

Bæta við vélum og fjölga flugferðum til Alicante og Kanarí

Vegna breytinga á samkeppnisumhverfinu mun Icelandair auka við framboð sitt í flugi til Suður-Evrópu frá því sem áður var ákveðið. Félagið hefur nú þegar bætt við framboði til Alicante og mun, í samstarfi við VITA, bjóða flug þangað þrisvar sinnum í viku í sumar.

Ennfremur, hefur félagið hafið vinnu sem miðar að því að bæta vélum við flugvélaflota Icelandair sem einungis eru útbúnar almennu farrými. Mun fleiri sæti verða í þessum vélum en í núverandi vélum félagsins sem lækkar kostnað á hvert framboðið sæti og styrkir þ.a.l. samkeppnishæfni félagsins á þessum markaði.

Þessar vélar henta betur í flug til áfangastaða sem eru ekki hluti af kjarnaleiðarkerfi Icelandair, t.d. Alicante og Tenerife, og skapa því tækifæri til frekari vaxtar. Gert er ráð fyrir að fyrstu vélarnar með þessari uppsetningu verði komnar í rekstur í byrjun árs 2020.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga