flugfréttir
Rouge mun fljúga til Íslands í júní í stað Air Canada
Airbus A319 þota Air Canada Rouge
Air Canada hefur gert breytingar á áætlunarflugi sínu til Íslands fyrir júnímánuð með því að láta flugvélar Air Canada Rouge fljúga hingað til lands.
Rouge er dótturfélag Air Canada sem stofnað var árið 2012 og mun félagið fljúga til Keflavíkurflugvallar frá Montréal
og frá Toronto líkt og upphafleg áætlun Air Canada gerði ráð fyrir.
Air Canada ætlaði sér að fljúga til Íslands með Boeing 737 MAX þotumm en vegna kyrrsetningar flugvélanna þá mun
Rouge fljúga þess í stað til Íslands með þotum af gerðinni Airbus A319.
Um næturflug til Íslands er að ræða og er brottför frá Montreal kl. 23:30 að staðartíma og lent í Keflavík kl. 8:30 og flogið
til baka kl. 10:00 og lent í Montréal kl. 11:20.
Frá Toronto er brottför kl. 22:55 og lent í Keflavík kl. 8:30 og brottför til baka til Kanada er kl. 10:00 og lent í Toronto
kl. 11:55.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.