flugfréttir
Indland afskráir sjö þotur í flota Jet Airways
Boeing 737-800 þota Jet Airways
Indversk flugmálayfirvöld hafa afskráð fyrstu flugvélunum í flota Jet Airways sem eru af gerðinni Boeing 737-800 að ósk tveggja eiganda.
Tvær af þessum þotum eru í eigu flugvélaleigunnar Avolon en hinar fimm tilheyra MC Aviation Partners. Þá hafa flugmálayfirvöld á Indlandi á borði sínu beiðni um að afskrá 13 þotur til viðbótar í flota Jet Airways vegna vangoldinna leigugjalda en félagið, sem er annað stærsta flugfélag Indlands, er sagt vera á barmi gjaldþrots.
Lögfræðifyrirtækið Sarin & Co segir að þrátt fyrir að vélarnar hafi verið afskráðar þá sé samt einhver tími í að hægt verði að ferja þær úr landi.
Meðal fyrirtækja og eigenda sem gera tilkall í að fá Boeing 737-800 þotur sínar til baka úr flota Jet Airways eru Avolon, Aviation Capital Group, BBAM, CIT Group Finance, San Clemente Leasing, FLY Leasing, Jade Leasing, Shell Maker Leasing og SAPA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.