flugfréttir

Norskur flugskóli pantar 60 rafknúnar kennsluflugvélar

- Stærsta pöntun sem gerð hefur verið í rafmagnsflugvélar á einu bretti

13. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:51

Sun Flyer 2 rafmagnsflugvélin

Norska flugfyrirtækið OSM Aviation hefur lagt inn pöntun í sextíu rafknúnar kennsluflugvélar frá Bye Aerospace af gerðinni eFlyer 2 sem munu fara í flota flugskólans OSM Aviation Academy.

Þetta er stærsta pöntun sem gerð hefur verið á einu bretti í rafmagnsflugvélar að sögn Espen Høiby, framkvæmdarstjóra OSM Aviation, sem telur nauðsynlegt að flugiðnaðurinn fari að taka skref í átt að vistvænni flugvélum.

eFlyer flugvélin, sem einnig er þekkt sem Sun Flyer 2, er tveggja sæta rafmagnsflugvél sem framleidd er af Bye Aerospace í Bandaríkjunum en fyrirtækið hefur verksmiðjur og höfuðstöðvar í Colorado í Bandaríkjunum.

Rekstarkostnaður við eina eFlyer 2 flugvél verður um 2.300 krónur á tímann

Flugvélin er knúin áfram með 80 kílówatta rafmagnsmótor sem vegur 20 kíló og kemur flugvélin með lithium-ion rafhlöðum og er mótirinn því allt að 90 kílóum léttari en hreyfill í núverandi kennsluflugvélum.

Rekstrarkostnaður flugvélanna mun lækka fimmfalt en að reka kennsluflugvél á borð við Cessna Skyhawk er um 13.000 krónur á tímann en að reka eFlyer 2 flugvélina mun kosta aðeins 2.300 krónur á tímann.

Frá undirritun samningsins sem fram fór á AERO-flugsýningunni í Friedrichshafen

eFlyer 2 er enn að ganga í gegnum prófanir en eitt eintak af slíkri flugvél frá Bye Aerospace kostar samkvæmt listaverði um 41 milljón króna en fyrsta eintakið verður afhent fyrir lok ársins 2021.

OSM Aviation í Noregi hefur tuttugu kennsluvélar í flotanum í dag en flugskólinn mun nota pöntunina til að skipta út flugvélum sem ganga fyrir hefðbundnu eldsneyti og einnig þrefalda fjölda kennsluvéla með pöntuninni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga