flugfréttir

Fór út af braut í flugtaki í Nepal

- Þrír látnir í flugslysi við flugvöllinn í Lukla

14. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 22:21

Frá slysstað í dag við Lukla-flugvöllinn í Nepal

Að minnsta kosti þrír eru látnir eftir flugslys í Nepal eftir að lítil farþegaflugvél af gerðinni Let L-410 Turboprop fór út af flugbraut í flugtaki frá flugvellinum í Lukla og hafnaði á kyrrstæðri þyrlu.

Til stóð að ferja flugvélina, sem var frá flugfélaginu Summit Air, til Ramechhap-flugvallarins og voru þrír um borð í vélinni en einn um borð í flugvélinni lést af sárum sínum á meðan tveir létu lífið sem urðu fyrir flugvélinni á þyrluflugpalli sem staðsettur er norðan við brautina.

Flugvélin var nýfarin í flugtaksbrun er hún fór hægra megin út af brautinni og endaði á kyrrstæðri þyrlu af gerðinni Eurocopter AS 350B3e frá fyrirtækinu Manang Air en bæði þyrlan og Let L-410 flugvélin voru gjörónýtar eftir áreksturinn.

Að sögn Summit Air þá voru engir farþegar um borð í flugvélinni og þá kemur fram að flugstjórinn hafi slasast á meðan flugmaðurinn lést í kjölfar slyssins auk þyrluflugmanns frá Manang Air.

Þrír voru um borð í Let L-410 flugvélinni en annar flugmaðurinn lést í slysinu

Let L-410 flugvélin var 6 ára gömul og var hún upphaflega í eigu rússneska fyrirtækisins PANH en var afhent til Summit Air árið 2017 en flugfélagið hefur þrjár aðrar Let-flugvélar af sömu gerð í flotanum.

Summit Air, sem áður hét Goma Air, var stofnað árið 2011 og flýgur félagið til 12 áfangastaða í Nepal frá Kathmandu-flugvelli og þar á meðal til Lukla sem hefur lengi verið talinn einn af hættulegustu flugvöllum heims.

Frá stofnun Summit Air (Goma Air) fyrir 8 árum síðan hafa átt sér stað fjögur flugslys og atvik í sögu félagsins og þar af tvö á flugvellinum í Lukla.

Fleiri myndir:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga