flugfréttir
1.000 flugmenn hjá Jet Airways mæta ekki til vinnu á morgun
- Hafa aðeins 7 flugvélar í umferð af flugflota sem telur 115 flugvélar
Flugmenn Jet Airways mótmæla á götum úti á Indlandi að hafa ekki fengið greidd laun í þrjá mánuði
Um 1.000 flugmenn hjá indverska flugfélaginu Jet Airways ætla ekki að mæta til vinnu á morgun en með því ætla þeir að mótmæla því að þeir hafa ekki fengið greidd laun í 3 mánuði.
Jet Airways er þessa daganna að róa lífróður til þess að bjarga rekstri flugfélagsins og hefur félagið fellt niður
allt millilandaflug félagsins og þar á meðal öllu áætlunarflugi til London Heathrow.
Verkalýðsfélög hafa beðið flugmennina um að bíða með verkfallsaðgerðir til þess að gefa stjórn félagsins tækifæri á því að
ná samningum sem talið er að gæti bjargað rekstri félagsins fyrir horn.
Skuldir Jet Airways nálgast nú 144 milljarða króna og hefur félagið ekki enn fengið 25 milljarða króna lán afgreitt
sem búið var að samþykkja fyrir lok marsmánaðar.
Flugvélar Jet Airways
Boðað var til neyðarfundar hjá forsætisráðuneyti Indlands sl. föstudag þar sem farið var yfir stöðu flugfélagsins sem
er annað stærsta flugfélag Indlands og kom fram að félagið hafi um helgina aðeins náð að halda úti 6 til 7 flugvélum
af flugflota sem telur 115 flugvélar.
Pradeep Singh Kharola, flugmálaráðherra Indlands, segir að á morgun muni félagið funda með fjárfestingabönkum
á Indlandi varðandi möguleika á að fá meira fjármagn inn í rekstur félagsins og er vonast til að stjórn félagsins og fjárfestar
geti fengið um 17 milljarða króna lán til þess að reka flugfélagið áfram tímabundið á meðan ný áætlun um næstu skref
verði gerð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.