flugfréttir

Júmbó-þotan á eitt og hálft ár eftir í flota Virgin

- Hætta með Boeing 747-400 fyrir lok ársins 2020

15. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:38

„Cosmic Girl“ í flugtaki

Breska flugfélagið Virgin Atlantic hefur gert drög að því að hætta með júmbó-þotuna og hefur félagið tilkynnt að Boeing 747 þoturnar verði farnar úr flotanum fyrir árið 2021.

Júmbó-þotan hefur þjónað Virgin Atlantic allt frá stofnun félagsins árið 1984 og hefur félagið í dag átta Boeing 747-400 þotur eftir í flotanum en nýjar Airbus A350-1000 þotur munu leysa júmbó-þotuna af hólmi á næstu mánuðum.

Seinnipart þessa sumars mun Airbus afhenda félaginu fyrstu A350-1000 þotuna sem mun fljúga sitt fyrsta áætlunarflug frá Heathrow-flugvellinum í London til New York og mun hún leysa af eina júmbó-þotu og til lok ársins munu aðrar fjórar A350-1000 þotur koma í stað þriggja Boeing 747 þotna sem hverfa úr flotanum til viðbótar.

Gert er ráð fyrir að hinar Boeing 747-400 þoturnar fjórar muni fara úr flotanum árið 2020 en allar júmbó-þoturnar sem eru í flota Virgin í dag eru frá 18 ára til 23 ára gamlar.

Júmbó-þoturnar átta í flota Virgin í dag heita nöfnunum Ladybird, Tiner Belle, Jersey Girl, Hot Lips, Barbarella, Forever Young, Pretty Woman og Ruby Tuesday.

Virgin Atlantic ætlaði upphaflega að taka júmbó-þoturnar úr umferð árið 2016 en árið 2015 voru júmbó-þoturnar 12 talsins. Á fjórum árum hafa Tubular Belle, English Rose, Cosmic Girl og Mustang Sally farið úr flotanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga