flugfréttir
Einkaþota þýska ríkisins í hremmingum í lendingu í Berlín
- Var í stuttum flugprófunum að lokinni viðhaldsskoðun
Ljósmynd sem náðist af Bombardier Global 5000 einkaþotunni er hún kom aftur inn til lendingar á Schöenefeld-flugvellinum í Berlín í morgun
Röskun varð á flugumferð um Schöenefeld-flugvöllinn í Berlín í morgun og beina þurfti komuflugvélum til annarra flugvalla eftir að einkaþota á vegum þýska ríkisins lenti í hremmingum skömmu eftir flugtak frá flugvellinum.
Einkaþotan, sem er af gerðinni Bombardier Global 5000, var nýfarin í loftið í prófunarflug eftir að hafa gengist í gegnum
viðhaldsskoðun en fljótlega kom í ljós að ekki var allt með felldu og áttu flugmennirnir í erfiðeikum með að lenda vélinni eftir að þeir snéru við.
Ekki er vitað hvað fór úrskeiðis og er verið að rannsaka atvikið en flugvélin vaggaði frá hægri til vinstri í aðfluginu og rákust báðir vængirnir ofan í flugbrautina í lendingu.
Engir farþegar voru um borð í einkaþotunni sem er starfrækt af þýska flughernum fyrir ríkisstjórn Þýskalands en þýska
varnarmálaráðuneytið segir að flugmönnunum hafi tekist að lenda flugvélinni heilu á höldnu.
Flugvélin hafði nýlokið viðhaldsskoðun á flugvellinum í Berlín
Flugvélin var stopp á þeirri einu flugbraut sem er á Schöenefeld-flugvellinum sem kom í veg fyrir að flugvélar gátu hvorki
lent né tekið á loft. Flugvélin hafði verið í viðhaldsskoðun sl. daga í Berlín og stóð til að fljúga henni síðar til Kölnar
þar sem hún hefur bækistöðvar.
Ríkisstjórn Þýskalands hefur 14 flugvélar í flota sínum sem hafa reglulega gengið í gegnum vandræðalegar bilanir
upp á síðkastið en í nóvember í fyrra mætti Angela Merkel, kanslari Þýskalands, of seint á umhverfisráðstefnu í Argentínu
eftir að Airbus A340 einkaþota þýska ríksins þurfti að snúa við til Þýskalands en Merkel þurfti þess í stað að fljúga til Argentínu
með áætlunarflugi.
Þá hafa nokkrar aðrar bilanir komið upp í einkaþotum á vegum þýsku ríkistjórnarinnar með þeim afleiðingum að utanríkisráðherra landsins varð á dögunum
strandaglópur í Malí í Afríku og þá var forseti landsins fastur í Eþíópíu vegna bilunar í annari einkaþotu.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.