flugfréttir

„Fljúgandi vængur“ brotlenti á fangelsislóð

- Tveir áratugir fóru í uppbyggingu á einu Northrop N-9M flugvélinni

23. apríl 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:08

Northrop N-9M flugvélin brotlenti í gær í Riverside í Kaliforníu

Eina eintakið sem til var af hinni sögufrægu Northrop N-9M flugvél, sem oft var kölluð „Vængurinn fljúgandi“, brotlenti í gær í Kaliforníu með þeim afleiðingum að flugmaður vélarinnar lét lífið.

Flugvélin brotlent við fangelsi í bænum Norco í Riverside-sýslu í Kaliforníu og varð flugvélin alelda en engan af vistmönnum né starfsmönnum fangelsins sakaði á jörðu niðri.

Vængurinn fljúgandi var í eigu Planes of Fame Air Museum flugsafnsins en flugvélin var smíðuð árið 1944 og var B-2 sprengjuflugvélin smíðuð síðar meir eftir hönnun þessarar vélar.

N-9M, „The Flying Wing“, var ein af þeim fjórum tilraunaflugvélum sem smíðaðar voru á fimmta áratugnum af Northrop sem byggðar voru á Northrop XB-35  flugvélinni en N-9M átti að vera langdræg sprengjuflugvél en flugvélin fór hinsvegar aldrei í fjöldaframleiðslu.

Flugvélin brotlenti á fangelsislóðinni

Fyrsta N-9M flugvélin sem smíðuð var brotlenti árið 1943 er tilraunaflugmanni tókst ekki að koma vélinni úr spuna í kjölfar 60 gráðu beygju. Lagfæringar voru gerðar á flugvélinni þar sem talið að um hönnunargalla hafi verið að ræða en skömmu síðar var ákveðið að binda endi á verkefnið.

Þremur Northrop N-9M flugvélum var fargað að einu eintaki undanskildu sem var flugvélin sem brotlenti í gær en flugvélin hafði gengist undir viðamikla endurgerð.

Planes of Fame Air Museum safnið keypti flugvélina árið 1982 en næstu tvo áratugina tók við viðamikil uppbyggingsvinna og endurgerð á þessari einu flugvél sem unnin var af fyrrum starfsmönnum Northrop sem tóku það að sér að koma flugvélinni aftur í upprunalegt ástand.

Verið var að undirbúa flugvélina fyrir flugsýningu sem fram fer þann 4. maí næstkomandi þegar hún fórst. Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) munu rannsaka slysið.

„Vængurinn fljúgandi“ var smíðuð árið 1944







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga