flugfréttir
Smíða áfram skrokka þótt afhendingar liggja niðri
Flugvélaskrokkur frá Spirit AeroSystems færður inn í samsetningarsal Boeing í verksmiðjunum í Renton
Spirit AeroSystems hefur ítrekað skyldu Boeing til þess að greiða áfram fyrir hvert eintak af þeim 737 MAX flugvélaskrokkum sem fyrirtækið bandaríska framleiðir þrátt fyrir að Boeing hafi stöðvað allar afhendingar á fullkláruðum þotum til sinna viðskiptavina.
Boeing tilkynnti á dögunum að til stæða að draga úr framleiðsluafköstunum úr 52 Boeing 737 MAX þotum
á mánuði niður í 42 eintök.
Spirit AeroSystems segir hinsvegar að fyrirtækið, sem framleiðir skrokkana í Wichita í Kansas, muni
halda áfram að framleiða 52 skrokka á mánuði þrátt fyrir að Boeing ætli að minnka afkostin hjá sér.
Spirit AeroSystems segir að fyrirtækið færi alla flugvélaskrokka til geymslu og sé litið á að búið
sé að afhenda þá til Boeing þótt ekki sé búið að ferja þá til Renton í Washington-fylki.
„Allar 737 sendingar, sem framleiddar hafa verið eftir að Boeing hætti að afhenda vélarnar, eru
skilgreindar af okkur sem skrokkar sem búið er að afhenda - Það mun undirstrika skyldu Boeing
til þess að greiða fyrir þær“, segir í tilkynningu frá Spirit AeroSystems.
„Ef Boeing fer fram á að við geymum skrokkana hjá okkur, og þ.e.a.s. ef við höfum pláss, þá munum
við geyma allar sendingarnar við verksmiðjurnar okkar“, segir ennfremur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.