flugfréttir
Boeing 737 endaði í ánni eftir lendingu í Jacksonville
- Allir komust lífs af er þota frá Miami Air International fór út af braut
Flugvélin var að lenda á herflugvelli í Jacksonville á tíunda tímanum í gærkvöldi að austurstrandartíma þegar hún fór út af braut
Allir komust lífs af er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 rann út af flugbraut í lendingu og endaði út í fljóti í Flórída í gærkvöldi.
Flugvélin, sem er frá flugfélaginu Miami Air International, var að koma frá Guantanamo Bay á Kúbu er atvikið átti sér stað
og var vélin að lenda á Towers Field herflugvellinum í Jacksonville þegar atvikið átti sér stað.
Fram kemur að flugvélin endaði út í St. Johns ánni eftir að hún fór út af brautinni en um borð voru 142 farþegar og náðist að koma þeim öllum frá borði.
Flugvélin var í leiguflugi en Miami Air International er þekkt fyrir að fljúga með hermenn og íþróttalið á milli
borga auk þess sem félagið er með samninga við ríkisstjórn Bandaríkjanna.
Áin er mjög grunn á því svæði þar sem flugvélin fór út af og sökk vélin ekki ofan í hana. Fram kemur að 21 hafi verið fluttir
á sjúkrahús en allir með minniháttar meiðsl og urðu engin alvarleg slys á fólki.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.