flugfréttir

Keilir býður upp á flugbúðir fyrir ungt fólk í sumar

- Einstakt tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast fluginu

9. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:15

Flugbúðirnar hjá Flugakademíu Keilis hafa notið mikilla vinsælda sl. ár

Flugakademía Keilis mun í næsta mánuði bjóða ungu fólki, og öðrum sem hafa brennandi áhuga á flugi, upp á flugbúðir þar sem áhugasamir fá einstakt tækifæri á því að skyggnast á bakvið töld flugsins og kynnast öllu því helsta sem flugtengdar námsgreinar hafa upp á að bjóða.

Flugbúðir Keilis hafa notið mikilla vinsælda og hafa færri komist að en vildu sem endurspeglar að þeir eru margir sem hafa áhuga á flugi og sjá fyrir sér að leggja flugið fyrir sér að atvinnu.

Þátttakendur fá innsýn inn í áhrif veðurs á flug, hvernig flugvélar eru uppbyggðar og hvernig þær fljúga. Einnig verður kynning á öðrum hliðum flugheimsins til dæmis flugvirkjun og flugumferðastjórn.

Gestafyrirlesarar úr flugtengdum fögum verða á námskeiðinu, svo sem flugmaður sem segir frá daglegu lífi sínu í millilandaflugi, og eru leiðbeinendur flugmenn og kennarar við Flugakademíu Keilis. Farið verður í vettvangsferðir og áhugaverðir flugtengdir hlutir skoðaðir – í mörgum tilfellum eitthvað sem venjulegt fólk upplifir aldrei.

Námskeiðið hentar vel þeim sem hafa brennandi áhuga á flugi og flugtengdum málum, sem og þeim sem hyggja á flugnám í framtíðinni. Allir þátttakendur fá persónulega kynningu á Redbird þjálfunarflughermi Flugakademíu Keilis.

Sumarnámskeið fyrir 13 ára og eldri 11. - 13. júní 2019

• Námskeiðið er ætlað einstaklingum 13 ára og eldri
• Námskeiðið er í þrjá daga, frá þriðjudegi til og með fimmtudags, frá 9:00 - 15:00
• Innifalið í verðinu er hádegismatur, námsgögn, vettvangsferðir og kynning á þjálfunarflughermi Flugakademíu Keilis. 
• Frá Reykjavík gengur strætó beint hingað á Ásbrú. Sjá www.straeto.is fyrir nánari upplýsingar um samgöngur
• Mikilvægt að hafa vegabréf alla dagana til að komast inn á flugverndarsvæði
Verð: kr. 37.400

Kennslan fer fram í húsnæði Keilis á Ásbrú og vettvangsferðir verða farnar um nágrenni skólans, meðal annars inn á Keflavíkurflugvöll. 

Umsagnir þátttakenda

• "Frábært og skemmtilegt”
• "Afskaplega fræðandi og hrikalega skemmtilegt" 
• "Skemmtileg og góð reynsla" 
• "Þetta var besta námskeið í heimi" 
• "Spennandi fyrir flugáhugamenn"
• "Mjög skemmtilegt og ég mæli með því"
• "Ein besta upplifun lífs míns"
• "Ég mæli algjörlega með þessu fyrir fólk sem hefur áhuga á flugi og vill kynnast ýmsum sviðum"
• "Gargandi snilld. Tær snilld sem þú ættir ekki að lára framhjá þér."
• "Eitt orð: fluggeggjun"
• "Frábært námskeið heppnaðist mjög vel, skemmtilegir kennarar og aðstoðarmenn sem gerði námskeiðið létt, þægilegt en samt skilningsríkt og öllu var vel skilað af sér."

Nánari upplýsingar veita Sveinn V. Björgvinsson á netfangið svenni@keilir.net eða í síma 578 1572

Nánari upplýsingar á vefsíðu Flugakademíu Keilis







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga