flugfréttir

IATA lokar fyrir aðgang Avianca Brasil að ferðaskrifstofum

- Fá ekki að njóta aðgangs að bokunarkerfi sem tengir 370 flugfélög saman

17. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 15:37

Airbus A320 þota Avianca Brasil

Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa sent tilkynningu til allra ferðaskrifstofa þar sem þeim er gert að hætta að selja flug með suður-ameríska flugfélaginu Avianca Brasil.

Avianca Brasil hefur átt í alvarlegum fjárhagserfiðleikum og er félagið nú á barmi gjaldþrots en flugvélaleigur hafa tekið til baka um 30 þotur úr flotanum og hefur félagið aðeins sex þotur til umráða.

Þá hefur IATA einnig lokað fyrir aðgangskerfi félagsins að bókunarkerfi sem tengur um 370 flugfélög frá yfir 180 löndum og er því búið að loka félagið úti í kuldanum er kemur að möguleikum að ná til farþega sem geta ekki lengur bókað flug með félaginu nema aðeins á gegnum vefsíðu félagsins.

Til að mynda ef evrópskt flugfélag selur flug frá Madríd til Salvador í Brasilíu en getur aðeins boðið upp á flug frá Madríd til Sao Paulo þá myndi, undir venjulegum kringumstæðum, vera hægt að fá flug með tengiflugi og farþegi gæti flogið frá Sao Paulo til Salvador með Avianca Brasil.

Með aðeins sex þotur í rekstri þá hefur leiðarkerfi félagsins dottið niður í aðeins fjóra flugvelli og flýgur félagið í dag því aðeins á milli Congonhas-flugvallarins í Sao Paulo, höfuðborgarinnar Brasilia, Salvador og Rio de Janeiro.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga