flugfréttir

Þrír lykilstarfsmenn yfirgefa söludeild Boeing

- Gengdu stóru hlutverki í sölu- og markaðsdeildinni

18. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:41

Yfirmennirnir þrír hafa starfað í nokkra áratugi fyrir Boeing og voru þeir allir í söludeildum Boeing í mismunandi hlutum heimsins

Þrír yfirmenn í söludeild Boeing hafa yfirgefið markaðsdeild fyrirtækisins þegar aðeins er mánuður í Paris Air Show flugsýninguna sem er ein mikilvægasta sölusýning fyrir Boeing og aðra flugvélaframleiðendur.

Með þessu er Boeing að missa aðila sem hafa haft mjög sterk sambönd við mikilvæga viðskiptavini og mun Boeing þurfa að finna aðra yfirmenn í þessar stöður í skugga erfiðleika með Boeing 737 MAX þoturnar.

Þeir yfirmenn, sem hafa sagt skilið við Boeing, eru Dinesh Keskar, sölustjóri Boeing á Indlandi, sem er einnig sölustjóri fyrir Asíu og Kyrrahafssvæðið en hann hefur starfað hjá Boeing í 39 ár.

Dinesh Keskar hefur landað sölum í yfir 2.500 flugvélar fyrir Boeing

Keskar, sem hefur doktorgráðu í flugvélaverkfræði, og lærði meðal annars undir leiðsögn geimfarans Neil Armstrong, hefur landað sölum í 2.500 þotur fyrir Boeing á þeim 32 árum sem hann hefur starfað í söludeildinni.

Þá er það Rick Anderson, yfirmaður yfir markaðs- og söludeild Boeing fyrir Kína og norðausturhluta Asíu en hann hefur starfað fyrir Boeing í 38 ár. Bæði Keskar og Anderson hafa þegar sagt skilið við Boeing.

Sá þriðji er Marty Bentrott, varaforstjóri fyrir söludeild Boeing í Miðausturlöndum, Rússlandi og Mið-Asíu en hann mun láta af störfum í júní.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga