flugfréttir
Ryanair frestar afhendingum á 737 MAX fram í nóvember
Þriðja Boeing 737 MAX 200 þotan var um helgina máluð í litum Ryanair
Ryanair hefur ákveðið að fresta afhendingum á þeim Boeing 737 MAX þotum sem pantaðar voru á sínum tíma en lágfargjaldafélagið írska átti að taka við fyrstu þotunum á næstu dögum.
Það var í september árið 2014 sem að Boeing kynnti til leiks Boeing 737 MAX 200 sem er sérstök
útgáfa af MAX þotunni sem er ætluð fyrir lágfargjaldafélögin en Ryanair pantaði 210 eintök af þotunni.
Til stóð að Ryanair myndi fá fyrstu fimm eintökin afhent núna á næstu vikum en vegna kyrrsetningar á Boeing
737 MAX þotunum þá frestast afhendiingarnar frá í nóvember.
Ryanair mun fá 42 Boeing 737 MAX 200 þotur afhentar í framhaldinu yfir veturinn og út sumarið 2020.
Ryanair segir að endurgerð afhendingaráætlunarinnar fari þó eftir samþykki frá flugmálayfirvöldum í Evrópu (EASA) en
ekki er vitað hvenær flugmálayfirvöld MAX þotunum leyfi til þess að hefja sig til flugs að nýju þrátt fyrir að uppfærsla á búnaði vélarinnar og prófanir sé lokið hjá Boeing.
Ryanair gerir ráð fyrir að félagið muni ekki sjá fram á hagræðingu í rekstri með Boeing 737 MAX þotunni fyrr
en í fyrsta lagi árið 2021 en félagið tekur fram að sparnaðurinn með nýju þotunum eigi eftir að vera gríðarlegur á næstu fimm
árum eftir það.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.