flugfréttir
Styttist í fyrsta flug Boeing 777X
- Stefna á jómfrúarflugið seinnipartinn í júní
Boeing tilkynnti fyrst um arftaka Boeing 777 árið 2013
Það styttist í jómfrúarflug nýju Boeing 777X þotunnar og er Boeing að undirbúa fyrsta flugið en þotan er arftaki Boeing 777 sem hefur verið ein vinsælasta tveggja hreyfla breiðþota heims frá því hún kom á markaðinn árið 1995.
Boeing hefur ýtt úr samsetningarsal annarri Boeing 777X tilraunarþotunni en inni í verksmiðjunni er verið að
setja saman þriðju og fjórðu þoturnar sem fara í flugprófanir og þá er verið að setja saman fyrstu tvö sölueinktökin
sem fara til Emirates.
Boeing hefur ekki viljað gefa upp hvenær fyrsta Boeing 777X þotan fljúga jómfrúarflugið en heimildir eru fyrir
því að verið sé að stefna á seinnipartinn í næsta mánuði.
Boeing 777X leit dagsins ljóss fyrst í mars í vor
Emirates er stærsti viðskiptavinurinn er kemur að Boeing 777X en félagið hefur pantað 150 eintök sem skiptist
niður í þrjátíu og fimm Boeing 777-8 þotur og 115 eintök af Boeing 777-9.
Verður allt að 20 sparneytnari en Boeing 777-300ER
Boeing 777X verður allt að 20 prósent sparneytnari en Boeing 777-300ER sem er eing algengasta tegundin
af Boeing 777 í dag og þá kemur arftakinn einnig með breiðara farþegarými, stærri gluggum og vegna breiðara
vænghafs þá mun vængendinn brotna saman með sérstökum hjörum til að þotan geti athafnað sig betur á flugvöllum.
Boeing segir að þar sem að Boeing 777X hafi flugdrægi upp á 8.200 nm mílur (15.185 kílómetra) þá eigi
þotan eftir að bjóða flugfélögum upp á lægsta rekstrarkostnað á hvert flugsæti en nokkur önnur þota í flugsögunni
geti státað sig af.
Boeing hefur fengið pantanir frá 9 flugfélögum í 344 Boeing 777X þotur en þau félög eru Lufthansa, Etihad Airways,
Cathay Pacific, Emirates, Qatar Airways, ANA (All Nippon Airways), Singapore Airlines, British Airways auk
eins viðskiptavinar sem ekki er enn vitað hver er.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.