flugfréttir

Munu ekki fljúga í sumar

- Gera ekki ráð fyrir Boeing 737 MAX fyrr en í haust í fyrsta lagi

23. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 18:51

„Dyrhólaey“, Boeing 737 MAX þota Icelandair í flugtaki í Manchester fyrr á þessu ári

Icelandair gerir ekki ráð fyrir Boeing 737 MAX þotunni í flugáætlun sinni í sumar og er því útséð að þotan verði með í sumarvertíðinni sem er annasamasti tími flestra flugfélaga.

Í tilkynningu frá Icelandair Group kemur fram að flugfélagið hafi uppfært flugáætlun sína til 15. september næstkomandi og sé ekki útlit fyrir að Boeing 737 MAX muni fljúga á næstunni þar sem flest bendir til þess að kyrrsetningin muni vara lengur en áætlað var.

Icelandair hefur þrjár leiguflugvélar sem teknar voru á leigu í kjölfar kyrrsentingarinnar en unnið er nú að því að ganga frá leigu á einni þotu til viðbótar sem er breiðþota af gerðinni Boeing 767-300 og verður Icelandair því með fjórar þotur á leigu á næstunni.

Kyrrsettar Boeing 737 MAX þotur á Keflavíkurflugvelli / Ljósmynd: Hilmar Bragi

Við þessar breytingar dregst sætaframboð félagsins á tímabilinu 15. júlí til 15. september saman um 5% frá því sem áður var áætlað. Eftir breytinguna er framboðsaukning milli ára á þessu tímabili samt sem áður 10%.

Félagið leggur nú megináherslu á fjölgun farþega á mörkuðunum til og frá Íslandi og eiga rúmlega 30% fleiri farþegar bókað með félaginu til Íslands á tímabilinu júní – ágúst en á sama tíma í fyrra.

Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga