flugfréttir

Söguganga um Öskjuhlíð og Nauthólsvík með Friðþóri Eydal

- Áhugafólki gefst kostur á að fræðast um hersetuna og upphaf flugvallarins

24. maí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:46

Sögugangan hefst kl. 17:30 þriðjudaginn 28. maí næstkomandi og er gengið frá flugturninum á Reykjavíkurflugvelli

Næstkomandi þriðjudag mun almenningi, flugáhugafólki og þeim sem gaman hafa af sögu hersetunnar og sögu Reykjavíkurflugvallar, bjóðast einstakt tækifæri á að fræðast um sögu flugvallarins í fræðslugöngu sem fram fer í Öskjuhlíð og Nauthólsvík.

Gangan, sem fer fram þriðjudaginn 28. maí, er í boði Isavia og fer hún fram undir leiðsögn Friðþórs Eydals en hann er starfsmaður hjá félaginu og hefur hann ritað fjölda bóka um hersetuna og umsvif erlendra herja á Íslandi.

Upphaf Reykjavíkurflugvallar má rekja til hersetu landsins í síðari heimsstyrjöld. Hann er raunar, ásamt Keflavíkurflugvelli, minnismerki um þá víðsjárverðu tíma sem skópu örlög heimsins og íslensku þjóðarinnar.

Séð yfir Reykjavíkurflugvöll á stríðsárunum

Á flugvellinum og í næsta nágrenni við hann eru víða merki um margvísleg umsvif á stríðsárunum, einkum í Öskjuhlíð og Nauthólsvík þar sem allmargar minjar um þessa merku sögu hafa verið merktar á viðeigandi hátt með glæsilegum söguskiltum.

Gangan hefst við flugturninn á Reykjavíkurflugvelli kl. 17.30 og lýkur á sama stað kl. 19. Sögungangan er hluti af viðburðum í tengslumvið aldarafmæli flugs á Íslandi í ár en þann 3. september í haust verða 100 ár liðin síðan flugvél hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi.

Flugið og flugstarfsemi eru síðan orðin stór hluti af sögu þjóðarinnar og skipa merkan sess í samgöngu- og atvinnuþróun landsins. Vagga flugsins stóð í Vatnsmýrinni í Reykjavík og þar var gerður flugvöllur sem lengi hefur verið miðstöð flugstarfsemi í landinu.

Reykjavíkurflugvöllur og Isavia munu í samstarfi við Flugmálafélag Íslands minnst þessara merku tímamóta í sögu þjóðarinnar með margvíslegum hætti.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga