flugfréttir
Einkaþota fór í sjóinn við Bahama-eyjar
- Átti að lenda í Fort Lauderdale en flaug framhjá í tæpa klukkustund
Einkaþotan, sem leitað er að (N832R), er af gerðinni Cessna Citation V
Leit stendur yfir af einkaþotu sem hrapaði í Atlantshafið í um 430 kílómetra fjarlægð austur af ströndum Flórída seint í gærkvöldi.
Einkaþotan, sem var af gerðinni Cessna Citation V, fór í loftið frá St. Louis Regional flugvellinum
í Illinois og var förinni heitið til Fort Lauderdale í Flórída en þotan fór í sjóinn skammt austur
af Bahama-eyjum og fór þotan um eina klukkustund framhjá áætlunarstað.
Talið er að flugmaður einkaþotunnar hafi verið einn um borð en þotan fórst um klukkustund
eftir að samband við flugturninn rofnaði.
Flugumferðarstjórum tókst að rekja för hennar og var F-15 orrustuþota send af stað og komu herflugmennirnir auga á þotuna rétt áður en hún fór í sjóinn.
Samkvæmt gögnum á ratsjá þá féll hraði einkaþotunnar skyndilega úr 358 hnútum niður í 256 kt er hún var í 38.000 fetum og þá var flugferill hennar undir það síðasta mjög óreglulegur. Svo virðist vera sem að stefna þotunnar
hafi verið þvers og kruss þar til hún hvarf af ratsjá klukkan 18 að staðartíma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.