flugfréttir
Uppsagnir á Keflavíkurflugvelli vegna samdráttar í flugi
- Má rekja til brotthvarfs WOW air
Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar
Isavia hefur gripið til þess ráðs að segja upp starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli vegna samdráttar í millilandaflugi.
Í tilkynningu Isavia kemur fram að á fundum með starfsmönnum hafi verið tilkynnt
að til uppsagna komi sem má rekja til brotthvarfs WOW air af markaðnum en um er
að ræða starfsmenn sem starfa meðal annars við öryggisleit og farþegaþjónustu.
Uppsagnirnar ná til 19 starfsmanna og til viðbótar býðst 15 starfsmönnum lægra starfshlutfall. Áður hafði verið dregið úr sumarráðningum hjá Isavia ásamt því að fjölmörgum fyrirhuguðum ráðningum hafði verið frestað og breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi vaktakerfa. Þessar aðgerðir hafa þegar náð til ýmissa starfsstöðva Isavia, þar á meðal til skrifstofustarfa.
Uppsagnirnar koma aðallega til vegna brotthvarfs Wow air í mars síðastliðnum. Einnig hefur breytt flugáætlun Icelandair í kjölfar kyrrsetninga á MAX vélum Boeing haft áhrif.
Fram kemur að umsvif í þjónustu vegna millilandaflugs eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir og er því óhjákvæmilegt annað en að grípa til þessara aðgerða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.