flugfréttir
Icelandair segir upp 45 flugmönnum á Boeing 737 MAX
Fyrsta Boeing 737 MAX þota Icelandair á Reykjavíkurflugvelli í apríl 2018
Icelandair hefur sagt upp 45 flugmönnum sem flugu Boeing 737 MAX þotunum sem hafa verið kyrrsettar frá því í mars í vor.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group en tæpar 12 vikur eru liðnar frá því að félagið lagði Boeing 737 MAX þotunum líkt og önnur flugfélög í heiminum.
Meðal þeirra sem var sagt upp eru 21 nýliði sem byrjuðu að fljúga Boeing 737 MAX í sumar og þá var einnig ráðningarsamningum við 24 flugmenn, sem hófu þjálfun sl. haust, slitið.
Ástæða uppsagnanna er sú að Icelandair gerir ekki ráð fyrir Boeing 737 MAX í leiðarkerfinu fyrr en um miðjan september
eins og tilkynnt var í síðustu viku.
„Það er þungbært að þurfa að grípa til þessarar sársaukafullu aðgerðar en við teljum það nauðsynlegt í ljósi þeirra erfiðu aðstæðna sem komnar eru upp vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX vélanna,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.
Stjórnklefinn á Boeing 737 MAX
Bogi tekur einnig fram að kyrrsetningin hafi neikvæð áhrif á rekstur félagsins og verður félagið því að leita allra leiða til að hagræða og draga úr kostnaði. „Við vonumst þó til að geta gefið þessum flugmönnum kost á starfi hjá
fyrirtækinu á ný þegar undirbúningur fyrir næsta sumar fer af stað en það kemur betur í ljós þegar málin skýrast varðandi MAX vélarnar.“, segir Bogi.
Fram kemur að Icelandair muni bjóða aðstoð við atvinnuleit í samstarfi við ráðningastof. Þá segir flufélagið þá flugmenn sem hafa til þess tilskilda þjálfun eiga kost á að fara í önnur störf hjá félaginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.