flugfréttir

SAS hættir sölu á tollfrjálsum varningi til að létta vélarnar

4. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 17:23

SAS stefnir á að draga úr kolefnalosun um 25 prósent fyrir árið 2030

SAS (Scandinavian Airlines) hefur ákveðið að hætta að selja tollfrjálsan varning um borð í flugvélum sínum í þeim tilgangi að létta flugvélarnar en með því nær félagið að spara eldsneyti.

Þá er tilgangurinn með því einnig til þess að draga úr útblæstri en SAS vinnur eftir umhverfisáætlun sem gerir ráð fyrir að félagið verði búið að draga úr kolefnaútblæstri um 25% fyrir árið 2030.

Svíar hafa verið duglegir í því að huga að umverfismálum og þá aðallega með því að draga úr losun kolefna en mörg sænsk fyrirtæki hafa hvatt starfsfólk sitt til þess að velja umhverfisvænni samgöngur á borð við lestar í stað þess að fljúga styttri vegalengdir.

Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóra SAS, segir að félagið hafi brugðist við með því að tilkynna að félagið muni létta flugvélarnar með því að hætta að hlaða um borð vörum sem félagið selur farþegum frá og með haustinu líkt og flest flugfélög hafa gert í gegnum tíðina.

Talsmaður SAS segir að sala á tollfrjálsum varningi hafi dregist hvort sem er saman að undanförnu og sé SAS að leita leiða til þess að selja farþegum vörur án þess að nauðsynlegt sé að hlaða þeim um borð í vélarnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga