flugfréttir

Lágfargjaldafélög herja á ríkisflugfélag Suður-Kóreu

- Þrjú ný lágfargjaldafélög munu hefja flugrekstru í Suður-Kóreu árið 2020

4. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 21:22

Flugvélar Korean Air á Incheon-flugvellinum í Seoul í Suður-Kóreu

Korean Air, ríkisflugfélag Suður-Kóreu og stærsta flugfélag landsins, segist ætla að bregðast hart við samkeppninni frá lágfargjaldaflugfélögum landsins og aðlagast breyttu rekstrarumhverfi til þess að ná að verða samkeppnishæfara.

Walter Cho, forstjóri Korean Air, segir að félagið hafi horft upp á samkeppnina aukast jafnt og þétt en nú sé komin tími til aðgerða þar sem þau eru farin að hafa áhrif á viðskiptin.

„Að undanförnu höfum við verið mjög aðgerðarlaus varðandi lágfargjaldaflugfélögin en núna er þetta farið að hafa áhrif á reksturinn. Við þessu ætlum við að bregðast við enn frekar“, segir Cho.

Korean Air stofnaði dótturfélagið Jin Air árið 2008 en seldi reksturinn nokkrum árum síðar en Jin Air er núna orðið annað stærsta lágfargjaldaflugfélag Suður-Kóreu. Það stærsta er Jeju Air og þá er Tway Airlines þriðja stærsta lágfargjaldaflugfélag landsins en þá eru Eastar Jet og Air Busan einnig umsvifamikil.

Suður-Kóresk flugfélög eru farin að sækja í sig veðrið

Öll suður-kóresku lágfargjaldafélögin fimm eru stofnuð á sl. 15 árum og sum þeirra hafa ekki náð 10 ára aldri og eru farþegar sífellt farnir að velja þau á styttri flugleiðum þar sem þau bjóða upp á mun hagstæðari fargjöld en Korean Air og Asiana Airlines.

Þá er verið að stofna þrjú ný lágfargjaldaflugfélög í Suður-Kóreu sem eru Aero K, Fly Gangwon og Air Premia en öll félögin hafa fengið flugrekstrarleyfi og stefna á að hefja flugrekstur árið 2020.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga