flugfréttir

MRJ þotan mun heita Space Jet

- Stefna á að öfluga markaðsetningu í Bandaríkjunum

5. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:10

Mitsubishi Regional Jet (MRJ) mun koma til með að heita Space Jet

Japanski flugvélaframleiðandinn Mitsubishi Aircraft ætlar að breyta um nafn á MRJ (Mitsubishi Regional Jet) þotunni sem mun fá nafnið Space Jet.

Með nafnabreytingunni ætlar framleiðandinn að auðvelda markaðsetningu þotunnar í Bandaríkjunum og þá stefnir Mitsubishi Aircraft einnig á að kaupa inn íhluti frá bandarískum framleiðendum í þeim tilgangi að skera niður kostnað við framleiðsluna sem mun auðvelda bandarískum flugfélögum að panta þotuna.

11 ár eru liðin frá því að framleiðsla hófs á fyrstu MRJ þotunni í Japan árið 2008 en núna styttist í að þotan fær flughæfnisvottun í Japan og hefjast afhendingar á næsta ári.

Mitsubishi Aircraft hefur framleitt sjö eintök af stærri þotunni, MRJ90 sem tekur 90 farþega, en búið er að smíða eitt eintak af minni gerðinni, MRJ70 sem tekur 70 farþega, en sú þota mun sennilega ekki fá flughæfnisvottun fyrr en árið 2022.

Upphaflega átti MRJ þotan að koma á markaðinn árið 2013

Mitsubishi Aircraft hefur fengið pantanir í 447 eintök af þotunum en flestir viðskiptavinirnir eru japönsk flugfélög en stærsti viðskiptavinurinn er bandaríska flugfélagið SkyWest sem annast flug fyrir Delta Connection, American Eagle og United Express, en það félag hefur pantað 100 eintök.

Upphaflega stóð til að afhenda fyrstu MRJ þotuna árið 2013 en sjö ára seinkun hefur orðið á verkefninu vegna hönnunarbreytinga og hefur framleiðandinn fimm sinnum þurft að seinka afhendingaráætluninni.

Talið er að Mitsubishi Aircraft muni kynna Space Jet nafnið á flugsýningunni Paris Air Show sem hefst síðar í þessum mánuði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga