flugfréttir
Flugslys í Fljótshlíð í gærkvöldi
- Einkaflugvél brotlenti nálægt Múlakoti
Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um slysið um hálfníuleytið í gærkvöldi
Alvarlegt flugslys átti sér stað í gærkvöldi á Suðurlandi er lítil flugvél brotlenti nálægt Múlakoti.
Fimm manns voru í flugvélinni en samkvæmt fréttum þá létust þrír í slysinu og tveir eru alvarlega slasaðir.
Tildrög slyssins eru ókunn en um einkaflugvél er að ræða. Tilkynning um slysið barst kl. 20:30
í gærkvöldi og voru tvær þyrlur sendar á vettvang til að flytja hina slösuðu til Reykjavíkur.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið vettvangsrannsókn en rannsóknaraðilar fóru á vettvang í gærkvöldi og stóð rannsókn yfir í alla nótt.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.