flugfréttir

Airbus ætlar að bæta við sjöttu Beluga XL flugvélinni

- Upphaflega var stefnt á að smíða fimm eintök

11. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:02

Beluga XL á flugi í febrúar á þessu ári

Airbus hefur ákveðið að smíða sjöttu Beluga XL flutningaflugvélina en framleiðandinn tilkynnti um nýja kynslóð af Beluga-flugvélinni í nóvember árið 2014 og hafa þrjú eintök verið smíðuð í dag.

Upphaflega ætlaði Airbus sér að framleiða fimm Beluga XL flutningavélar til að leysa af hólmi Beluga-vélarnar sem einnig eru þekktar sem Airbus A300-600ST.

Airbus hefur nú ákveðið að bæta þeirri sjöttu við til að koma til móts við aukna þörf eftir flutningum á íhlutum milli verksmiðja í tengslum við aukinn framleiðsluhraða á Airbus A350-900 þotunni og einnig aukna framleiðslu á Airbus A320neo þotunni.

Airbus stefnir á að afhenda 880 flugvélar á þessu ári eða um 63 þotur á mánuði sem kallar á fleiri flugferðir með flugvélaíhluti frá verksmiðjum til þeirra staða þar sem Airbus-þotur fara í lokasamsetningu.

Tvær Beluga XL flugvélar hafa tekið þátt í flugprófunum en verið er að setja saman þá þriðju í Toulouse en á meðan eldri vélarnar voru byggðar á Airbus A300 þá byggir Beluga XL á Airbus A330.

Fyrsta Beluga XL flutningaflugvélin flaug sitt fyrsta flug þann 19. júlí í fyrra og fer flugprófunum með þá flugvél að ljúka á næstunni.

Sérstakt vottunarferli tilheyrir Beluga XL flugvélinni þar sem ýmsar breytingar eiga sér stað þegar þeim er breytt úr hefðbundinni Airbus A330 þotu og munu þær fljúga undir sérstöku flugrekstrarleyfi á vegum flugmálayfirvalda í Evrópu (EASA).







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga