flugfréttir
Airbus fékk eina pöntun í maí
- Afhentu hinsvegar mun fleiri þotur samanborið við maí 2018
Nýjar farþegaþotur við verksmiðjur Airbus í Toulouse í Frakklandi
Airbus fékk aðeins eina pöntun í maí en afhenti á móti 81 þotu af öllum gerðum af þeim tegundum sem framleiddar eru.
Pöntunin eina var pöntun í eitt eintak af Airbus ACJ320neo sem er einkaþotuútgáfa af Airbus A320neo
en ACJ stendur fyrir Airbus Corporate Jets.
Til samanburðar þá fékk Airbus pantanir í níu farþegaþotur í maí í fyrra en maí er talinn meðalmánuður
er kemur að pöntunum en margir viðskiptavinir ákveða að bíða með pantanirnar þangað til í júní
þegar flugsýningin Paris Air Show fer fram á hverju ári.
Afhendingum fjölgaði hinsvegar um 30 þotur þar sem Airbus afhenti 51 þotu í maí í fyrra
en framleiðandinn afhenti í maí fjórar Airbus A220 þotur (CSeries), 57 flugvélar af gerðinni Airbus A320
en af þeim voru 47 af gerðinni A320neo.
Í flokki breiðþotna afhenti Airbus fimm Airbus A330 og af þeim voru þrjár af gerðinni A330neo. Þrettán
Airbus A350 þotur voru afhentar og tvær Airbus A380 risaþotur.
Boeing hefur hinsvegar ekki enn birt lista yfir pantanir og afhendingar í maí.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.