flugfréttir
Finnair sagt vera að undirbúa stóra pöntun
Airbus A330 breiðþotur Finnair á flugvellinum í Helsinki
Finnair er sagt vera að undirbúa stóra pöntun í meðalstórar farþegaþotur sem verður undirstaðan að framtíðarflota félagsins.
Þessi stærðarflokkur hjá Finnair samanstendur í dag af 38 þotum af gerðinni Airbus A320, A319
og Airbus A321 og eru því miklar líkur að Airbus verði fyrir valinu þar sem flotinn samanstendur í dag
nær eingöngu af flugvélum frá Airbus.
Finnair hefur átta Airbus A319 þotur sem eru með meðalaldur upp á 18 ár, tíu Airbus A320 þotur sem
eru í kringum 17 ára gamlar og 19 Airbus A321 þotur með meðalaldur upp á 8 ár.
Áður hefur komið fram að Finnair sé að íhuga að panta allt að 30 nýjar þotur en pöntunin, að sögn
framkvæmdarstjóra félagsins, verður stærsta fjárfesting Finnair næsta áratuginn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.