flugfréttir
FAA telur að Boeing 737 MAX fljúgi á ný í desember
Boeing 737 MAX þotur fyrir framan verksmiðjur Boeing í Renton
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið í skyn að Boeing 737 MAX þoturnar eiga sennilega ekki eftir að fljúga á ný fyrr en í desember.
Ef svo er þá þýðir það að Boeing 737 MAX mun verða kyrrsett í heila 9 mánuði en upphaflega höfðu
mörg flugfélög gert sér vonir um að hún muni snúa aftur í loftið í sumar.
Ali Bahrami, einn af yfirmönnum innan FAA, sagði í dag á blaðamannafundi á öryggisráðstefnu í Köln í Þýskalandi á vegum FAA og EASA, að MAX-vélarnar ættu að vera komnar aftur með leyfi til þess að fljúga á ný í desember.
„Bandarísk flugmálayfirvöld eru undir mikilli pressu og MAX-vélarnar verða komnar aftur í loftið þegar
við teljum það vera orðið fullkomnlega öruggt“, segir Bahrami.
Ali Bahrami, einn af yfirmönnum hjá FAA
Þetta kemur heim og saman við það sem Dennis Muilenberg, framkvæmdarstjóri Boeing, sagði
á dögunum er hann taldi að Boeing 737 MAX myndi snúa aftur rétt fyrir lok ársins.
EASA á eftir að taka sína eigin ákvörðun
American Airines breytti flugáætlun sinni á dögunum og gerir félagið eins og er ekki ráð fyrir
að Boeing 737 MAX þotur félagsins munu fljúga fyrr en í ágúst og bendir því allt til þess að félagið
muni breyta þeirri dagsetningu.
Þá eiga flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) eftir að taka ákvörðun varðandi MAX-vélarnar er
kemur að evrópskum flugfélögum en stofnunin er að fara yfir þær uppfærslur sem Boeing
hefur gert á þotunum og gæti það ferli staðið yfir út júlí.
EASA er að ákveða hvort nauðsynlegt sé að fara fram á viðbótarþjálfun flugmanna í flughermi
og hvort farið verði fram á að Boeing gerir enn frekari breytingar á uppfærslunni.
Yfir 380 Boeing 737 MAX þotur eru kyrrsettar núna um allan heim í flota yfir 40 flugfélaga en þoturnar
hafa verið kyrrsettar núna í 12 vikur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.