flugfréttir

Donald Trump kynnir nýtt útlit fyrir Air Force One

- Segist hafa hannað nýja búninginn sjálfur

13. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:13

Donald Trump sýnir hér þær tillögur sem hann segist hafa hannað sjálfur fyrir nýju Air Force One þotuna

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, kynnti í gær nýtt útlit á nýju Air Force One forsetaflugvélina í viðtali við fréttamenn ABC News sem fram fór í Hvíta Húsinu.

Trump segir að hann hafi sjálfur hannað útlitið og litina en það var í júlí í fyrra sem tilkynnt var um að nýja forsetavélin mynd fá nýtt útlit.

Boeing fékk formlega pöntun í nóvember árið 2017 frá ríkisstjórn Bandaríkjanna í tvær Air Force One forsetaflugvélar sem verða af gerðinni Boeing 747-8 og verða þær afhentar árið 2024.

Donald Trump sagðist vilja sjá nýja liti í stað núverandi búnings fyrir Air Force One þoturnar sem hafa komið í himinbláum og hvítum litum og hefur Trump hannað þær í þjóðræknum fánalitum Bandaríkjanna.

Donald Trump kynnir nýja útlitið fyrir fréttamönnum ABC News

Á meðfylgjandi myndbandi segir Trump að nokkrar mismunandi útgáfur koma til greina og tekur hann fram að þotan muni ekki koma til með að þjóna honum heldur öðrum Bandaríkjaforsetum sem eiga eftir að gegna hans embætti í framtíðinni.

Nýja Air Force One forsetaþotan mun koma með sérstakri forsetasvítu, læknastofu þar sem hægt verður að framkvæma aðgerðir og eldhúsi sem getur matreitt máltíðir ofan í allt að 100 manns í einu.

„Þetta verður Boeing 747 en þessi er miklu stærri og með miklu stærra vænghaf“, segir Trump er hann svarar spurningum fréttamanna.



Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga