flugfréttir

Airbus A321XLR mun hafa MTOW upp á 101 tonn

- Hefur flugdrægi upp á 4.700 mílur og tekur 200 farþega

17. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:55

Tölvugerð mynd af Airbus A321XRL sem á að koma á markaðinn árið 2023

Airbus hefur gefið upp tölur varðandi afkastagetu og eiginleika Airbus A321XLR þotunnar en til stendur að þotan komi á markað árið 2023.

Airbus mun hafa hámarksflugtaksþunga upp á 101 tonn og kemur hún með flugdrægi upp á 4.700 nm mílur en þess má geta að Airbus A321LR hefur flugdrægi upp á 4.000 mílur.

A321XLR kemur með sérstökum „varanlegum “ miðjueldsneytistanki sem gefur henni þá eiginleika að geta flogið 4.700 nm og mun sá tankur geta borið enn meira eldsneyti en viðbótareldsneytistankar sem sem hægt er að notast við á Airbus A321LR þotunni í dag en á móti kemur þá mun Airbus A321XLR ekki geta borið eins mikla frakt.

Þá segir Airbus að búið sé að gera breytingar á hjólastelli vélarinnar vegna aukins flugtaksþunga auk þess sem hönnunarbreytingar hafa verið gerðar á stjórnflötum.

Allar breytingar sem gerðar hafa verið á hönnun Airbus A321XRL hafa verið takmarkaðar að því leiti að þær hafi ekki áhrif á sameiginlega tegundaráritun Airbus A321 þotnanna og þá verður A321XLR allt að 30% sparneytnari samanborið við „núverandi kynslóð“ af Airbus A321.

Frá kynningu á Airbus A321XLR þotunni í morgun á flugsýningunni í París







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga