flugfréttir
Boeing 797 verður ekki kynnt á flugsýningunni í París
Forsvarsmenn Boeing kynna stöðu framleiðandans á flugsýningunni í París í morgun
Boeing hefur tilkynnt að framleiðandinn muni ekki kynna nýja farþegaþotu til leiks á flugsýningunni í París sem kennd hefur verið við Boeing 797.
Kevin McAllister, forstjóri Boeing og framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeildinni, tilkynnti, skömmu eftir
að Airbus kynnti A321XLR þotuna, að ekki væri von á neinum fréttum af Boeing 797 þotunni á
flugsýningunni.
Margir höfðu gert vonir um að Boeing myndi kynna nýju farþegaþotuna til leiks á Paris Air Show
þar sem framleiðandinn hefur lagt mikla vinnu í undirbúning á nýrri framtíðarþotu sem er ætlað að brúa bilið sem Boeing 757 skildi eftir sig
er framleiðslu á henni var hætt árið 2004.
McAllister segir að framleiðandinn þurfi að vinna meira í undirbúningi á þróuninni og greina markaðinn betur en að öðru
leyti er í forgangi að vinna að því að koma Boeing 737 MAX þotunni aftur í loftið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.