flugfréttir
Isavia semur við HS Orku um raforkukaup
Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, við undirritun samningsins.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, hafa undirritað samning um raforkukaup Isavia.
Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs þar sem HS Orka var lægstbjóðandi. Samningurinn gildir næstu fjögur árin með heimild til framlengingar tvisvar sinnum um tvö ár í senn, þannig að heildarsamningstími getur orðið átta ár.
„Með samningnum nær Isavia fram hagræði í raforkukaupum ásamt því að hann er liður í að minnka kolefnisfótspor Isavia þar sem gerð er krafa um að öll keypt raforka sé endurnýjanleg,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
„Hægt verður að kalla eftir uppruna- og hreinleikavottorði hvenær sem er á samningstíma.“, segir Sveinbjörn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.