flugfréttir

Keflavíkurflugvöllur án kolefnislosunar fyrir árið 2050

- Isavia undirritar NetZero2050-skuldbindingunni á Kýpur í morgun

26. júní 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:38

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, á fundi ACI Europe í morgun að undirrita yfirlýsinguna

Á 29. ársþingi ACI EUROPE, evrópudeildar Alþjóðasamtaka flugvalla, á Kýpur í morgun skrifaði Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, undir skuldbindingu um að Keflavíkurflugvöllur muni hætta allri kolefnislosun í beinni starfsemi sinni í síðasta lagi árið 2050.

Þessi yfirlýsing var gefin út samfara því að ACI EUROPE tilkynntu um NetZero 2050-skuldbindingu rekstraraðila flugvalla með formlegum hætti. Hún felur í sér að flugvellirnir hætta kolefnislosun í sinni starfsemi í síðasta lagi árið 2050. Þessi sameiginlega skuldbinding, sem undirrituð var af 194 flugvöllum sem reknir eru af 40 rekstraraðilum í 24 löndum, er stórt skref í baráttu flugvalla gegn loftslagsbreytingum.

  „Við á Keflavíkurflugvelli styðjum þessa yfirlýsingu. Með undirritun hennar lýsum við yfir ásetningi okkar í umhverfismálum með ótvíræðum hætti. Við höfum unnið markvisst að því að minnka kolefnaútblástur okkar síðan árið 2015 og höfum lokið við annað stig af fjórum í innleiðingu á kolefnisvottun ACA (Airport Carbon Accreditation). Það þýðir að við höfum kortlagt kolefnisspor okkar, gripið til aðgerða til að minnka kolefnislosun og sett markmið í þeim efnum.“, segi Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.  

„Með NetZero2050-skuldbindingunni eru flugvellir að samstilla sig við Parísarsamkomulagið og hið nýja loftslagsmarkmið sem Evrópusambandið setti sér í síðustu viku.“, segir Dr. Michael Kerkloh, forseti ACI EUROPE og framkvæmdastjóri flugvallarins í München.

Skuldbindingin felur í sér að flugvellirnir hætta kolefnislosun í sinni starfsemi í síðasta lagi árið 2050

Fresturinn til ársins 2050 er í samræmi við nýjustu gögn IPCC og þá stefnu framkvæmdastjórnar ESB sem tekin var upp af ráðherraráði Evrópusambandsins, um að þróa notkun orkugjafa í átt að lægra hlutfalli kolefna (decarbonization).

Patricia Espinosa, framkvæmdastjóri UNFCCC (Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar) segir: „Í skýrslu IPCC (Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar) frá því í október síðastliðnum er lögð áhersla á mikilvægi þess að hætta losun gróðurhúsalofttegunda fyrir miðja öldina. Allir geirar í samfélaginu þurfi að vinna saman að þessu endanlega markmiði. Það er því hvetjandi að sjá flugvallarrekendur setja markið hærra“.  







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga