flugfréttir

Super King Air endaði á flugskýli eftir flugtak í Texas

- Enginn komst lífs af eftir flugslys á Addison-flugvellinum í Dallas í gær

1. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:13

Flugvélin endaði á flugskýli á flugvellinum rétt eftir að hún hóf sig á loft

Enginn komst lífs af í flugslysi í Bandaríkjunum er flugvél af gerðinni Super King Air endaði á flugskýli skömmu eftir flugtak frá litlum flugvelli norður af Dallas í gær.

Um borð í vélinni voru 10 manns og fór hún í loftið frá Addison-flugvellinum skammt norður af Dallas og var förinni heitið til St. Petersburg í Flórída.

Fram kemur að vélin hafi ekki náð nægilegu klifri eftir að hún hóf sig á loft frá brautinni og geigaði hún til vinstri í lágri hæð yfir jörðu og endaði á stóru flugskýli á flugvallarsvæðinu. Mikill eldur kom upp og steig svartur reykjarmökkur til himins.

Fram kemur að í vélinni voru 8 farþegar og tveir flugmenn og komst enginn lífs af. Flugskýlið var mannlaust er slysið átti sér stað en ein einkaþota og þyrla, sem voru í flugskýlinu, urðu fyrir skemmdum.

Flugvélin sem fórst í gær (N534FF)

David Snell, einn flugmaður, sem var að undirbúa flugferð með vini sínum í gærmorgun, varð vitni að slysinu og segir að hljóðið frá vélinni hafi ekki verið með eðlilegum hætti í flugtakinu. - „Það var greinilegt að aflið minnkaði. Ég er ekki viss hvort að flugmaðurinn dró sjálfur úr aflinu eða ekki en næst þá byrjar vélin að leita til vinstri og það sást að flugvélin var ekki að ná almennilegri klifri“, segir Snell.

Annar sjónarvottur telur að flugvélin hafi varla náð 200 feta hæð yfir jörðu þar til hún fór að missa þá litlu hæð sem vélin hafði náð.

Flugumferðarstjóri tilkynnti öðrum flugvélum á flugvellinum að búast ekki við því að komast í loftið á næstunni þar sem það hafði átt sér stað flugslys. Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú tildrög slyssins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga