flugfréttir

Fyrsta A320neo þota Atlantic Airways komin til Færeyja

15. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 19:56

OY-RCK var ferjuð til Vágar frá Hamborg sl. föstudag

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur tekið við fyrstu Airbus A320neo þotunni sem ber skráninguna OY-RCK og var hún afhent ný til félagsins um helgina.

Þotan var ferjuð frá verksmiðjum Airbus í Hamborg til Vágar-flugvallarins í Færeyjum sl. föstudag þann 12. júlí.

OY-RCK er fyrsta af þeim fjórum A320neo þotum sem Atlantic Airways hefur pantað og mun fyrsta þotan leysa af hólmi aðra Airbus A319 þotuna sem félagið hefur haft í flota sínum.

OY-RCK er ein af þeim tveimur A320neo þotum sem félagið tók á leigu hjá flugvélaleigunni Air Lease Corporation en seinni þotan verður afhent vorið 2020.

OY-RCK er ein af þeim fjórum Airbus A320neo þotum sem Atlantic Airways á von á að fá afhentar á næstu árum

„Atlantic Airways mun halda áfram að tengja eyjarnar við umheiminn með fleiri brottförum og fleiri áfangastöðum og það einnig í samstarfi við önnur flugfélög í þeim tilgangi að kynna Færeyjar sem ferðamannastað“, sagði Niels Mortensen, forstjóri Atlantic Airways, við hátíðlega athöfn sem fram fór í tilefni af komu þotunnar.

Hinar tvær A320neo þoturnar voru pantaðar beint frá Airbus á flugsýningunni Paris Air Show sem fram fór í júní og er það í fyrsta sinn sem Atlantic Airways leggur inn pöntun til Airbus en sú fyrri verður afhent árið 2023 og sú seinni árið 2024.

Fleiri myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga