flugfréttir
Fallhlífarstökksflugvél ók á kyrrstæða kennsluvél í Slóvakíu
- Pilatus PC-6 ók með skrúfuna í kyrrstæða Diamond DA40 kennsluvél
Pilatus PC-6 flugvélin var nýlent og var að aka er hún endaði inn í hliðina á Diamond DA-40 kennsluflugvél
Engann sakaði er tvær flugvélar rákust saman á jörðu niðri í Slóvakíu í gær en önnur vélin, af gerðinni Pilatus PC-6, ók á kyrrstæða Diamond DA40 flugvél sem var mannlaus.
Pilatus-flugvélin, sem notuð er til að fljúga með fallhlífastökkvara á vegum Skydive Dubnica klúbbsins, rakst framan
á nefhlutann á kennsluflugvél í eigu flugskólans Seagle Air og skemmdi hana töluvert með loftskrúfunni eins
og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.
Diamond-flugvélin er mikið skemmd þar sem skrúfan fór í gegnum stjórnklefann
vinstra megin og er klæðning og skrokkur vélarinnar, vélarhlíf, mælar og rafmagnssnúrur ýmist stórskemmt eða ónýtt eftir áreksturinn.
Atvikið átti sér stað á Dubnica-flugvellinum í bænum Slavnica í gærmorgun
en engar frekari upplýsingar eru gefnar upp varðandi tildrög óhappsins en fram kemur að flugmálayfirvöld
í Slóvakíu séu að rannsaka atvikið.
Myndband og myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.