flugfréttir
Loka starfsstöðvum vegna seinkana á nýjum MAX-þotum
- Fá sennilega helmingi færri 737 MAX þotur afhentar fyrir sumarið 2020
Boeing 737-800 þotur Ryanair
Ryanair hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið segir að til komi að skera niður starfsemi félagsins með því að loka nokkrum starfsstöðvum í haust sem má rekja til kyrrsetningu á Boeing 737 MAX þotunum.
Ryanair segir að þar sem kyrrsetningin eigi eftir að hafa áhrif á afhendingar
þá geri félagið ekki ráð fyrir að vera komið með eins margar MAX þotur í flotann
fyrir sumarið 2020 eins og gert var ráð fyrir í upphafi.
Félagið átti von á að vera komið með 58 Boeing 737 MAX þotur fyrir sumarið
á næsta ári en ef félagið fær þá fyrstu afhenta í janúar eða febrúar eftir áramót, og
fær um sex til átta þotur í hverjum mánuði eftir það, verður félagið aðeins komið
með um 30 þotur í mesta lagi sem er helmingi færri þotur en áætlun félagsins
gerir ráð fyrir.
„Þessar tölur gætu verið enn minni sem fer eftir því hvenær Boeing 737 MAX
mun snúa aftur“, segir í tilkynningu frá félaginu sem vonast til þess að kyrrsetningunni
verði aflétt fyrir lok ársins.
Nýjar Boeing 737 MAX þotur Ryanair munu samt ekki geta byrjað að fljúga strax þar sem þær eiga eftir að fara í gegnum sérstakt vottunarferli þar sem þær þotur sem félagið fær
er sérstök lágfargjaldaútgáfa sem taka um 200 farþega.
Ef félagið er aðeins komið með 30 þotur í flotann í stað 58 þá samsvarar það
að félagið þarf að gera ráð fyrir allt að 7% samdrætti í núverandi flugáætlun fyrir
sumarið sem þýðir að loka þarf einhverjum starfsstöðvum þar sem farþegar
verða þá allt að 5 milljónum færri.
Ryanair á nú í viðræðum við nokkra flugvelli vegna fyrirhugaðra niðurskurðaaðgerða
vegna þessa en félagið myndi sjá annars fram á töluvert tap ef það myndi halda
óbreyttum starfsmannafjölda á bækistöðvunum með helmingi færri 737 MAX þotur
í notkun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.