flugfréttir

Air Lease fær grænt ljós á að sækja Airbus-þotuna

- Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Air Lease í vil í morgun

17. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:11

TF-GPA á Keflavíkurflugvelli

Bandaríska flugvélaleigan Air Lease Corporation hefur fengið grænt ljós á að sækja Airbus A321 þotu í eigu fyrirtækisins sem staðið hefur á Keflavíkurflugvelli frá gjaldþroti WOW air eftir að Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrirtækinu í vil í morgun.

Í dómnum kemur fram að Air Lease beri eingöngu að greiða þau gjöld sem snúa að þotunni sjálfri en ekki þá upphæð sem WOW air skuldaði Isavia og getur flugvélaleigan því nálgast þotuna sína strax í dag.

Oddur Ástráðsson, lögmaður Air Lease, segir að möguleg áfrýjun til Landsréttar hafi ekki áhrif niðurstöðu dómsins í dag og geti fyrirtækið því náð í þotuna ef skuld upp á 87 milljónir sé greidd en skuld WOW air við Isavia voru tæpir 1,8 milljarður króna.

Þotan, sem ber skráninguna TF-GPA, hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá því 18. mars sl. eða í fjóra mánuði en WOW air varð gjaldþrota tíu dögum síðar, þann 28. mars.

Tilkynning frá Isavia

Isavia hefur gefið frá sér yfirlýsingu í kjölfarmálsins þar sem fram kemur að fyrirtækið lýsir furðu sinni með niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í ljósi þess að hún er í miklu ósamræmi við fyrri umfjöllun Landsréttar um málið. Þar lýsti Landsréttur með mjög skýrum hætti skoðun æðra dómsstigs á túlkun lagaákvæðsins.

„Þá teljum við verulega ámælisvert að beiðni um frestun réttaráhrifa sé hafnað í ljósi þeirra fjárhagslegu hagsmuna sem undir eru. Frestun réttaráhrifa hefði haft óveruleg áhrif á ALC en hefði tryggt eðlilega meðferð jafn mikilvægs máls fyrir æðra dómsstigi“, segir í yfirlýsingu.

„Með synjun Héraðsdóms Reykjaness á frestun réttaráhrifa er takmarkaður mjög möguleiki Isavia til að fá endanlegan úrskurð fyrir fjölskipuðum dómi“, segir ennfremur í yfirlýsingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga