flugfréttir

Tvö ókeypis námskeið hefjast í næstu viku hjá Keili

- Námskeið fyrir ungt fólk um flugtengd störf og kynning á flugnámi

18. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 15:57

Fyrra námskeiðið hefst 22. júlí og stendur yfir í fimm daga og það síðara hefst 29. júlí og stendur yfir í þrjá daga

Í næstu viku munu tvö námskeið hefjast á vegum Flugakademíu Keilis, annars vegar grunnnámskeið um einka- og atvinnuflugnám og hinsvegar námskeið fyrir ungt fólk um flugtengd störf en bæði námskeiðin eru ókeypis.

Grunnnámskeið um einka- og atvinnuflugnám

Fyrra námskeiðið, Grunnámskeið um einka- og atvinnuflugnám, hefst þann 22. júlí og er um 5 daga námskeið að ræða, ætlað fullorðnum einstaklingum á aldrinum 18 ára og eldri og fá þátttakendur að kynnast tækifærum og námi til einkaflugs og atvinnuflugs.

Á námskeiðinu verður farið yfir fyrirkomulag og skipulag einka- og atvinnuflugnáms, sem og þau tækifæri sem felast í flugtengdum störfum. Þátttakendur kynnast flugnámi frá upphafi til enda, tegundaáritun flugmanna og vinnu í flughermum, sem og öðrum tengdum starfsstéttum bæði beinum og afleiddum flugstörfum. 

Flugnemar í aðflugi að flugvellinum á Ísafirði

Um er að ræða greinargott og innihaldsríkt grunnnámskeið um flug, sem er ætlað að vekja áhuga fólks á námi og tækifærum í flugi og flugtengdum greinum bæði hérlendis og erlendis. 

Athygli skal vakin á því að námskeiðið höfðar jafn vel til beggja kynja og fer námskeiðið fram í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Auk þess verður farið í vettvangsferðir og heimsóknir til fyrirtækja.

Þess ber að geta að námskeiðið veitir engin réttindi, en allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir að hafa lokið námskeiðinu þar sem fram kemur ítarleg lýsing á innihaldi þess.

Nánari upplýsingar um Grunnnámskeið um einka- og atvinnuflug

Flugtengd störf - Námskeið fyrir ungt fólk

Námskeið um flugtengd störf er ætlað ungu fólki á aldrinum 13 - 16 ára sem vilja kynnast námi, starfi og tækifærum á öllu því sem flugrekstur hefur upp á að bjóða, allt frá atvinnuflugi yfir í flugtengd störf á jörðu niðri. 

Á námskeiðinu verður farið yfir allt það sem snýr að flugrekstri í víðu samhengi. Þátttakendur fá meðal annars að kynnast flugnámi frá upphafi til enda, tegundaáritun flugmanna, vinnu í flughermum, námi og starfi flugvirkja, starfi flugþjóna, afgreiðslufólks á flugvöllum og flugumsjónarmanna, flugvallarstarfsmanna, flugumferðarstjóra, tækni og rekstrarhlið flugrekstrar og öðrum tengdum starfsstéttum bæði beinum og afleiddum flugstörfum.

Um er að ræða skemmtilegt námskeið sem er ætlað að vekja áhuga ungs fólks á flugtengdum störfum og námi þeim tengdum. Markmiðið er að þátttakendur fái dýpri sýn á störf og nám þeirra starfsstétta sem sem starfa í flugtengdum greinum og þau fjölbreyttu tækifæri sem flugtengdar greinar geta skapað bæði hérlendis og erlendis. Athygli skal vakin á því að námskeiðið höfðar jafn vel til stúlkna sem drengja.

Námskeiðið fer fram í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ og að auki verður farið í vettvangsferðir og heimsóknir til fyrirtækja.

Þess ber að geta að námskeiðið veitir engin réttindi, en allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir að hafa lokið námskeiðinu þar sem fram kemur ítarleg lýsing á innihaldi þess.

Nánari upplýsingar um námskeiðið: Flugtengd störf - Námskeið fyrir ungt fólk







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga