flugfréttir
Airbus á von á pöntun í yfir 100 þotur frá Air France
- Stefna á að panta allt að sjötíu Airbus A220 þotur
Air France gæti tilkynnt formlega um pöntunina fyrir lok júlímánaðar
Airbus er sagt vera á lokasprettinum með að ná samningi við Air France um stóra pöntun í allt að sjötíu Airbus A220 þotur (CSeries) auk tugi þotna af gerðinni Airbus A320neo.
Með pöntuninni stefnir Air France á að endurnýja flugflotann er kemur að
meðalstórum flugvélum en félagið hefur yfir 110 þotur í flotanum af gerðinni
Airbus A318, A319, A320 og Airbus A321 sem margar hverjar eru komnar vel til ára sinna.
Meðalaldur þessara flugvéla í flota Air France er um 18 ár og sumar af flugvélunum er
orðnar yfir 25 ára gamlar.
Fram kemur að Air France-KLM muni taka endanlega ákvörðun um pöntunina
fyrir lok mánaðarins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.