flugfréttir

Kyrrsettar í kjölfar flugslyss í Svíðþjóð

- Tvær GippsAero GA8 Skyvan kyrrsettar á Íslandi

22. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 08:56

GippsAero GA8 Skyvan flugvélin hefur verið kyrrsett af flugmálayfirvöldum í Evrópu, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi

Flugmálayfirvöld nokkurra ríkja og landa hafa farið fram á kyrrsetningu á flugvélartegund af gerðinni GippsAero GA8 Skyvan, sömu gerðar og sú sem fórst í Svíðþjóð þann
14. júlí sl. með þeim afleiðingum að níu manns létu lífið.

Flugmálayfirvöld í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi hafa til að mynda bæði dregið lofthæfisskírteini til baka frá þeim flugrekendum sem hafa þessar flugvélar í rekstri og kyrrsett þær.

Þá gáfu flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) út neyðartilmæli um helgina þar sem farið var fram á kyrrsetningu á þeim GippsAero GA8 Skyvan flugvélum sem eru í eigu eða umsjón meðal flugrekenda í Evrópu og nær það einnig til Íslands og hafa tvær flugvélar af þessari gerð verið kyrrsettar hérlendis.

Flest bendir til þess að brestur hafi orðið í burðarvirki vélarinnar sem fórst í Svíþjóð með þeim afleiðingum að hún féll til jarðar. Fyrstu fréttir bentu til þess að annar vængurinn hefði losnað af vélinni en það hefur ekki fengist staðfest og er orsök slyssins enn ókunn.

Um 220 GippsAero GA8 Skyvan flugvélar eru í umferð í heiminum í dag en 63 af þeim eru að finna í Ástralíu en flugvélin er framleidd í Viktoríu-ríki í Ástralíu.

GA8 flugvélin er mjög vinsæl meðal minni flugfélaga sem bjóða upp á útsýnisflug, leiguflug eða fallhlífastökk og þá hefur hún einnig verið notuð við strandgæslu, lofthelgisgæslu og til björgunarflugs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga