flugfréttir

Fyrsta Boeing 777X þota Emirates komin úr samsetningu

- Verður afhent til Emirates í janúar 2021

30. júlí 2019

|

Frétt skrifuð kl. 13:58

Emirates mun fá fyrstu Boeing 777X þotuna afhenta árið 2020

Birtar hafa verið myndir af fyrstu Boeing 777X þotunni fyrir Emirates en flugfélagið verður fyrsti viðskiptavinurinn til að taka við fyrsta eintakinu af arftaka Boeing 777.

Fyrsta Boeing 777X þota Emirates (WH007) var dregin út úr samsetningarsal Boeing í Everett í gærkvöldi og má sjá hvar búið er að sprauta liti félagsins á vængenda vélarinnar sem brettast upp á við svo að þotan geti athafnað sig betur á flugvöllum en vænghaf Boeing 777X verður 7 metrum lengra en vænghaf á Boeing 777-300ER.

Emirates lagði inn pöntun til Boeing í 150 Boeing 777X þotur á flugsýningunni Dubai Airshow árið 2013 og samanstendur sú pöntun af 35 þotum af gerðinni Boeing 777-8 og 115 eintökum af Boeing 777-9.

Fyrsta Boeing 777X þota Emirates (Boeing 777-9) er Boeing 777 þota númer 1.611 í röðinni frá því framleiðsla hófst á 777 árið 1993 en Boeing 777 er að finna í flota 58 flugfélaga í dag.

WH007 er tímabundin skráning á fyrstu Boeing 777X þotunni fyrir Emirates

Tveir mánuðir eru liðnir frá því að Boeing ýtti út úr skýli fyrstu Boeing 777X tilraunarþotunni og stóð til að fyrsta tilraunarþotan myndi fljúga jómfrúarflugið á þessu ári en Boeing hefur nú frestað því flugi fram á næsta ár.

Boeing 777X verður allt að 20 prósent sparneytnari en Boeing 777-300ER sem er eing algengasta tegundin af Boeing 777 í dag, með flugþol upp á 8.200 nm (mílur) og þá kemur arftakinn einnig með breiðara farþegarými, stærri gluggum og vegna breiðara vænghafs þá mun vængendinn brotna saman með sérstökum hjörum til að þotan geti athafnað sig betur á flugvöllum. 

Fleiri myndir









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga