flugfréttir
Halda ekki áfram flugi milli Akureyrar og Keflavíkur í haust
Flugfélag Íslands byrjaði að fljúga milli Akureyrar og Keflavíkur árið 2016
Air Iceland Connect ætlar ekki að halda áfram að fljúga á mili Akureyrar og Keflavíkurflugvallar í haust.
Flugfélagið byrjaði fyrst að fljúga á milli Keflavíkur og Akureyrar í október árið 2016 er félagið hét Flugfélag Íslands
og var flogið yfir vetrartímann fram á vor.
Félagið hóf seinast flug milli Akureyrar og Keflavíkur sl. október og var flogið fram í maí á þessu ári en til stóð að hefja flugið aftur í október í haust en hætt hefur verið við þau áform.
Í frétt á Vísi.is segir Árni Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Air Iceland Connect, að ástæðan sé vegna fækkunar
á farþegum í innanlandsflugi og sér félagið ekki fram á að flug milli Akureyrar og Keflavíkur muni bera sig
í vetur.
Upphaflega stóð til að einblína á erlenda ferðamenn og bjóða þeim upp á auðveldari máta til að ferðast norður í land
beint frá Keflavíkurflugvelli en flugið hefur þó meira verið notað af Íslendingum. Flugið var einungis hægt að bóka sem hluta
af tengiflugi í Keflavík.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.